Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 280/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 280/2023

Fimmtudaginn 10. ágúst 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. maí 2023, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. febrúar 2023 og var umsóknin samþykkt 8. mars 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. maí 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði ekki mætt í boðað viðtal.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. júní 2023. Með bréfi, dags. 6. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. júlí 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. júlí 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að þann 2. maí 2023 hafi henni borist smáskilaboð í farsíma þess efnis að henni biðu skilaboð á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn teljari sé á vef stofnunarinnar til að sýna fjölda ólesinna skilaboða, og kæranda hafi einungis borist ein smáskilaboð, hafi henni ekki dottið í hug að henni hafi yfirsést skilaboð vegna viðtals sem fara ætti fram daginn eftir sendingu skilaboðanna.

Þegar kærandi hafi áttað sig á þessum mistökum hafi hún haft samband við Vinnumálastofnun og útskýrt mistök sín. Kærandi hafi aldrei hundsað boð eða ekki látið vita ef hún kæmist ekki, hvort sem það sé vegna veikinda eða atvinnuviðtals, enda myndi hún ekki sóa tíma annarra né sýna þá ókurteisi að boða ekki forföll. Skýring kæranda hafi ekki verið talin gild og niðurstaða Vinnumálastofnunar sú að hún hafi hafnað viðtalsboði. Kærandi geti þó ekki hafnað boði sem hún hafi ekki vitneskju um.

Kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun og Greiðslustofu og bent á að skilaboð séu með stimpil sem sýni tímasetningu þegar þau séu opnuð. Þar sjáist að kæranda hafi aldrei séð skilaboðin. Að sögn Vinnumálastofnunar hvíli sönnunarbyrðin á kæranda sem standist þó ekki þar sem aðgangur hennar að síðu stofnunarinnar bjóði ekki upp á þann möguleika að sjá umræddan tímastimpil.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 1. febrúar 2022. Með erindi, dags. 8. mars 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 66%.

Þann 2. maí 2023 hafi kærandi verið boðuð til viðtals hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Viðtalið hafi átt að fara fram daginn eftir, þann 3. maí 2023, klukkan 11:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna. Þar sem kærandi hafi áður verið boðuð til viðtals, en boðað forföll sín, hafi henni verið greint frá því að ef boðuð yrðu forföll aftur yrðu ástæður forfalla sendar til Greiðslustofu og afstaða tekin til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Umrædd boðun hafi verið send þann 2. maí 2023 á uppgefið netfang kæranda, með tilkynningu inn á „Mínum síðum“ og með smáskilaboðum í farsíma klukkan 10:09.

Þann 4. maí 2023 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði ekki mætt til boðaðs viðtals á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar. Kæranda hafi í kjölfarið með erindi, dags. 11. maí 2023, verið boðið að koma að skýringum vegna fjarveru sinnar til viðtals. Kæranda hafi verið greint frá því að ef hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta.

Vinnumálastofnun hafi borist skýringar kæranda þann 13. maí 2023. Að sögn kæranda hafi mannleg mistök verið ástæða þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals. Hún hafi fengið smáskilaboð í farsíma um að hennar biðu skilaboð á „Mínum síðum“, en við athugun hafi hún aðeins séð tilkynningu um að ferilskrá hennar hafi verið send til tiltekins atvinnurekanda. Þar sem á „Mínum síðum“ væri ekki hægt að sjá fjölda ólesinna tilkynninga hafi hún verið þeirrar trúar að með umræddum smáskilaboðum hafi ætlunin verið að tilkynna henni að ferilskrá hennar hafi verið send. Það væri ekki vani hennar að hunsa boðun til viðtals eða að boða ekki forföll sín. Kærandi hafi beðist afsökunar á þessum misskilningi. Meðfylgjandi skýringum kæranda hafi verið skjáskot af „Mínum síðum“ kæranda, þar sem meðal annars megi sjá að kærandi hafi fengið tvö skilaboð þar sem hún sé upplýst um að ferilskrá hennar hafi verið send til atvinnurekanda. Jafnframt megi sjá á umræddum skjáskotum tilkynningu til kæranda um að hún hafi verið boðuð til viðtals.

Með erindi, dags. 22. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hennar vegna fjarveru til boðaðs viðtals hafi ekki verið metnar gildar og að réttur hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta væri felldur niður í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi síðar verið staðfest með erindi, dags. 30. maí 2023.

Þann 31. maí 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda. Að hennar sögn hafi hún aldrei hafnað viðtalsboði, enda hafi hún ekki getað hafnað því þar sem hún hafi aldrei séð tilkynningu um boðun til viðtals. Þann 1. júní 2023 hafi kærandi óskað þess að stofnunin rökstyddi ákvörðun sína. Kæranda hafi verið veittur rökstuðningur þann 14. júní 2023.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir til að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 3. maí 2023. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að ef hinn tryggði bregðist þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ljóst sé af framangreindum lagaákvæðum að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa viðkomandi kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs viðtals lúti að því að hún hafi ekki séð boðun til viðtalsins. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi valið að vera í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi henni verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hennar með tölvupósti, skilaboðum inn á „Mínum síðum“ eða með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýst með fullnægjandi hætti um hvernig henni yrði send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá þyki ljóst að mati Vinnumálastofnunar að það að kærandi hafi ekki séð tilkynningu á „Mínum síðum“ um boðun til umrædds viðtals réttlæti ekki höfnun á vinnumarkaðsúrræði. Gera verði þær kröfur til atvinnuleitenda að þeir kynni sér vel efni þeirra tilkynninga og boðana sem stofnunin sendi þeim.

Í ljósi alls þess sem hafi verið rakið, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðuð í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 3. maí 2023. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau. Kærandi var jafnframt upplýst um að ekki væri ekki hægt að fá nýja boðun í viðtal en ástæður forfalla yrðu sendar á Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Hið sama gilti um ótilkynnt forföll. Kærandi hvorki boðaði forföll né mætti í viðtalið. Skýringar kæranda á fjarveru hennar bárust Vinnumálastofnun þann 13. maí 2023, eftir beiðni stofnunarinnar, þess efnis að hún hafi ekki séð boðun í viðtalið.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum í farsíma og skilaboðum á „Mínum síðum“.  Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. maí 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum